Fótbolti

Beckenbauer: Robben er eigingjarn

Robben er ekki mikið fyrir að fagna með félögunum.
Robben er ekki mikið fyrir að fagna með félögunum.
Franz Beckenbauer er ekki í aðdáendaklúbbi Hollendingsins Arjen Robben, sem leikur með Bayern Munchen. Beckenbauer segir að Robben sé allt of eigingjarn.

Beckenbauer segir að Robben eigi að sýna meira þakklæti í garð félaga sinna þegar hann skorar í stað þess að líta alltaf til fjölskyldu sinnar í stúkunni.

"Robben er eigingjarn leikmaður eins og svo margir aðrir. Hann þakkar eiginlega aldrei manninum sem leggur upp mörkin fyrir hann. Hann hleypur alltaf til fjölskyldunnar og leikmenn liðsins þurfa því að elta hann," sagði Beckenbauer um þetta háalvarlega mál.

"Það mun koma að því að félagar hans fá nóg og hætta að gefa á hann þar sem hann kann ekki að meta það. Hann á að hugsa miklu meira um liðið en hann gerir núna."

Robben er búinn að skora 5 mörk í 12 leikjum með Bayern í vetur. Hann hefur verið mikið fjarverandi vegna meiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×