Körfubolti

Átta í röð hjá Grindvíkingum | Unnu Valsmenn létt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Mynd/Valli
Grindvíkingar styrktu stöðu sína á toppi Iceland Express deildar karla með 38 stiga sigri á botnliði Valsmanna, 119-81 í Grindavík í kvöld. Þetta var áttundi deildarsigur Grindvíkinga í röð.

J´Nathan Bullock var með 19 stig og 10 fráköst fyrir Grindavík, Páll Axel Vilbergsson skoraði 16 stig og Sigurður Gunnar Þorsteinsson var með 15 stig. Snorri Þorvaldsson skoraði 19 stig fyrir Val og Birgir Björn Pétursson skoraði 16 stig.

Grindavík vann 33-21 yfir eftir fyrsta leikhlutann og með 29 stiga forskot í hálfleik, 67-38. Grindavík var 33 stigum fyrir lokaleikhlutann og vann að lokum með 38 stigum, 119-81.

Grindavík er nú búið að vinna átta leiki í röð en Valsmenn hafa hinsvegar tapað öllum sextán leikjum sínum.  Grindvíkingar eru með átta stiga forskot á toppnum þegar sex umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×