Fótbolti

Gamli liðsfélagi Gylfa: Allt Þýskaland er að hlæja að Hoffenheim-liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson slapp frá vitleysunni í Hoffenheim.
Gylfi Þór Sigurðsson slapp frá vitleysunni í Hoffenheim. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Holger Stanislawski var rekinn sem þjálfari Hoffenheim í dag og það er óhætt að segja að gamla félagið hans Gylfa Þórs Sigurðssonar sé ekki í góðum málum. Gylfi er að slá í gegn í láni hjá Swansea en á meðan er ástandið slæmt innan herbúða Hoffenheim sem er auk þess að nálgast fallbaráttuna með hverju tapinu á fætur öðru.

Tom Starke, markvörður Hoffenheim, tjáði sig um stöðu mála hjá Hoffenheim eftir tapið á móti b-deildarliðinu Greuther Fuerth í gærkvöldi.

„Það er mikil ólga innan félagsins," viðurkenndi Tom Starke og ítrekaði áhyggjur sínar. „Það er mikill órói innan okkar raða og það er okkar eigin sök. Allt Þýskaland er að hlæja að okkur," sagði Starke.

„Þetta er hættulegt ástand því við stöndum ekki saman inn á vellinum og það er aldrei góð staða fyrir nokkurt lið. Það er engin ástæða til að láta sem ekkert sé að," sagði Starke.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×