Fótbolti

Messi með enn eina þrennuna í sigri á Málaga

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mynd. / Getty Images
Barcelona rústaði Málaga 4-1 í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en í leiknum gerði Lionel Messi sína fimmtu þrennuna sína á tímabilinu.

Messi kom Barca yfir eftir rúmlega hálftíma leik en Alexis Sánchez kom síðan gestunum í 2-0 í upphafi síðari hálfleiks.

Messi var aftur á ferðinni á 50. mínútu þegar hann gerði laglegt mark. Argentínumaðurinn fullkomnaði síðan þrennu sína tíu mínútum fyrir leikslok. Heimamenn náðu að koma inn einu marki rétt fyrir leikslok þegar Salomón Rondón skoraði.

Niðurstaðan því 4-1 sigur Barcelona sem er með 44 stig, tveimur stigum á eftir Real Madrid. Real Madrid á aftur á móti einn leik til góða síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×