Innlent

Sílikonbrjóstin farin að leka: "Maður er náttúrulega hræddur"

Kolbrún Jónsdóttir fékk staðfest í gær að sílikonið væri farið að leka um allan líkamann.
Kolbrún Jónsdóttir fékk staðfest í gær að sílikonið væri farið að leka um allan líkamann. mynd/stöð 2

Kona með PIP-sílíkonfyllingar fékk í gær staðfest að sílíkonið væri farið að leka um líkamann. Frá því fregnir bárust af mögulegri skaðsemi fyllinganna hefur hún hvergi fengið að panta tíma í ómskoðun, en með hörku fékk hún loks að fara í skoðun.



Kolbrún Jónsdóttir sagði sögu sína á Stöð 2 þann 5. janúar. Þá kom fram að hún væri með mikla verki og grunaði að púðarnir væru farnir að leka.



Hún reyndi að panta tíma hjá Krabbameinsfélaginu en fékk það ekki, jafnvel þó hún vildi greiða úr eigin vasa, því samningar höfðu ekki náðst við velferðarráðuneytið.



Eftir ítrekaðar tilraunir fékk hún loks tíma hjá Ottó Guðjónssyni lýtalækni í gær.



„Eftir þá skoðun var tekin ákvörðun um að setja mig í sónar hjá Domus Medica í gær. Þá kom í ljós að púðinn í hægra brjósti er rofinn og frekar illa farinn," segir Kolbrún.



Hún segir að í fyrstu hafi henni í raun verið létt að fá þessa staðfestingu á grun sínum.



„En svo náttúrulega vakna þessar tilfinningar í gær. Púðinn er rofinn og búinn að leka í einhvern tíma, ég er búin að vera með verki aftan í baki. Hann kreisti brjóstið til að sýna mér á mynd hvað væri að gerast, og þetta var eins og æðar og það var bara sílikon sem lak. Ég varð svolítið óttaslegin. Ég veit ekki hversu stór aðgerðin verður, er þetta komið í rifbeinin eða undir holhendur?"



Velferðarráðuneytið tilkynnti í gær að samningar hefðu náðst við Krabbameinsfélag Íslands um ómskoðanir á konum með PIP-púða.



Bréf ráðuneytisins til þessara kvenna verða send út í dag.



„Maður er náttúrulega hræddur, við verðum að vera rólegur. Núna er maðurinn minn að vinna í því að koma mér undir læknishendur, því hann er virkilega hræddur," segir Kolbrún að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×