Fótbolti

Götze frá í tvo mánuði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mario Götze fagnar marki í leik með Dortmund.
Mario Götze fagnar marki í leik með Dortmund. Nordic Photos / Getty Images
Mario Götze, miðjumaðurinn stórefnilegi hjá Borussia Dortmund, er meiddur í nára og verður vegna þessa frá næstu tvo mánuðina.

Götze hefur ekkert spilað með sínu liði síðan í byrjun desember og í morgun var staðfest að hann þyrfti lengri hvíld. Stefnt væri að því að hann myndi spila á ný um miðjan mars.

Þrátt fyrir ungan aldur er Götze þegar orðinn fastamaður í þýska landsliðinu og reiknað er með að hann spili stórt hlutverk með liðinu á EM í Póllandi og Úkraínu í sumar.

Götze hefur verið orðaður við flest stærstu lið Evrópu en hann átti stóran þátt í því að Dortmund varð Þýskalandsmeistari á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×