Fótbolti

Benzema tryggði Real sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Xabi Alonso í leiknum í kvöld.
Xabi Alonso í leiknum í kvöld.
Real Madrid er komið áfram í fjórðungúrslit spænsku bikarkeppninnar eftir 4-2 samanlagðan sigur á Malaga. Karim Benzema tryggði Real 1-0 sigur á útivelli í síðari viðureigninni í kvöld.

Benzema hefur skorað mikið að undanförnu og skoraði markið sitt í kvöld aðeins örfáum mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður.

Real mætir líklega Barcelona í fjórðungsúrslitunum en Börsungar hafa 4-0 forystu gegn Osasuna eftir fyrri viðureign liðanna í bikarnum. Sú síðari fer fram síðar í vikunni.

Tveir aðrir leikir fóru fram í bikarnum í kvöld. Real Mallorca vann Real Sociedad, 6-1, og samanlagt 6-3. Þá gerði neðrideildarliðið Mirandes sér lítið fyrir og sló út úrvalsdeildarlið Racing Santander í kvöld. Liðin gerðu þá 1-1 jafntefli en Mirandes vann fyrri leikinn 2-0 og því samanlagt 3-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×