Fótbolti

Robben vill framlengja við Bayern

Hollendingurinn Arjen Robben er afar hamingjusamur í herbúðum Bayern Munchen og stefnir að því að spila með félaginu út sinn feril.

Hinn 27 ára gamli Robben hefur verið í herbúðum Bayern síðan 2009. Samningur hans við félagið rennur út árið 2013 og vill Robben framlengja þann samning.

"Það fara viðræður um nýjan samning fram á næstu mánuðum. Við munum ekki bíða fram á síðustu stundu með að ganga frá málinu," sagði Robben.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×