Fótbolti

Ronaldo og Mourinho verða heima er besti leikmaður heims verður valinn

Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, og Jose Mourinho, þjálfari félagsins, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að þeir ætli ekki að mæta á galahátíðina er besti leikmaður heims verður krýndur.

Hófið fer fram á mánudaginn en Real Madrid á að spila daginn eftir og þeir vilja ekki trufla þann undirbúning með því að fara á hófið.

Ronaldo er klárlega talinn vera á meðal þriggja efstu í kjörina en líklegt verður að telja að Lionel Messi verði aftur valinn sá besti.

Madrid á að spila seinni bikarleik sinn gegn Malaga á þriðjudeginum og leiðir einvígið 3-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×