Fótbolti

Malaga safnar liði

Spænska liðið Malaga ætlar að bjóða Borussia Dortmund 10 milljónir evra fyrir paragvæska framherjann Lucas Barrios.

Barrios hefur verið út í kuldanum hjá Dortmund í vetur en hann var í lykilhlutverki hjá liðinu í fyrra er það vann þýska meistaratitilinn.

Malaga er í eigu fjársterkra aðila frá Katar sem hafa verið óhræddir við að eyða peningum.

"Ég hef ekki áhuga á því að sitja á bekknum næstu sex mánuði," sagði framherjinn sjálfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×