Körfubolti

NBA í nótt: Washington enn án sigurs á útivelli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Russell Westbrook fer upp að körfunni í leiknum í nótt.
Russell Westbrook fer upp að körfunni í leiknum í nótt. Mynd/AP
Oklahoma City vann í nótt sigur á Washington í tvíframlengdum leik í NBA-deildinni í körfubolta, 124-117.

Þetta þýðir að þrátt fyrir góða frammistöðu Washington í leiknum dugði það samt ekki til að vinna fyrsta leik liðsins á útivelli á tímabilinu.

Kevin Durant hafði mikið um það að segja en hann skoraði 40 stig í leiknum, þar af tíu í síðari framlengingunni.

Þar af skoraði hann átta stig í röð þegar að Oklahoma City seig loksins fram úr liði Washington um miðja framlenginguna.

Washington hefur nú tapað öllum 22 leikjum sínum á útivelli til þessa á tímabilinu og er það þriðja versta byrjun liðs á útivelli í sögu deildarinnar.

Russell Westbrook átti einnig stórleik fyrir Oklahoma City og náði risavaxinni þrefaldri tvennu - 35 stigum, þrettán stoðsendingum og þrettán fráköstum.

Nick Young skoraði 32 stig fyrir Washington og Trevor Brooker 21 stig og tók hann þar að auki tólf fráköst.

Milwaukee vann Toronto, 116-110, í framlengdum leik. Corey Maggette skoraði sigurkörfu Milwaukee í leiknum á loka mínútunni en þetta var tíunda tap Toronto í röð.

Denver vann Cleveland, 117-103. Carmelo Anthony skoraði 33 stig fyrir Denver og Arron Affalo 23. Cleveland hefur nú tapað nítján leikjum í röð sem er metjöfnun í sögu félagsins.

Miami vann Detroit, 88-87. Eddie House setti niður tvö vítaköst þegar 6,5 sekúndur voru eftir og gerði það gæfumuninn. LeBron James var með 39 stig fyrir Miami.

Sacramento vann LA Lakers, 100-95. DeMarcus Cousins var með 27 stig og tíu fráköst fyrir Sacramento og Omri Casspi 20 stig. Sacramento hafði tapað átta leikjum í röð fyrir þennan góða sigur á ríkjandi NBA-meisturunum.

Phoenix vann Boston, 88-71. Marcin Gorat skoraði nítján stig og tók sautján fráköst fyrir Phoenix og Vince Carter bætti við sautján stigum.

Chicago vann Orlando Magic, 99-90. Luol Deng skoraði 26 fyrir Cihcago og Derrick Rose 22.

Atlanta vann New York, 111-102. Joe Johnson skoraði 34 stig fyrir Atlanta.

Utah vann Minnesota, 108-100. Paul Millsap skoraði 30 stig fyrir Utah sem hafði tapað sex leikjum í röð.

Indiana vann New Jersey, 124-92. Mike Dunleavy skoraði 30 stig fyrir Indiana sem hafði einnig tapað sex leikjum í röð.

Memphis vann Philadelphia, 99-94. Rudy Gay skoraði sextán stig fyrir Memphis sem lenti mest 21 stigi undir í leiknum.

Charlotte vann Golden State, 121-113, í framlengdum leik. Stephen Jackson skoraði 31 stig og setti niður þrist í lok fjórða leikhluta sem tryggði Charlotte framlenginguna.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×