Gagnrýni

Lopinn þæfður

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Prjónaklúbburinn eftir Kate Jacobs.
Prjónaklúbburinn eftir Kate Jacobs.
Bækur

Prjónaklúbburinn eftir Kate Jacobs. Þýðing: Aðalheiður Jónsdóttir

JPV-útgáfa

Konur hittast á hverju föstudagskvöldi í garnbúð á Manhattan og prjóna saman. Þær eru, eins og pólitísk rétthugsun krefst, á öllum aldri og af mismunandi kynþáttum, frá þrettán ára til rúmlega sjötugs, flestar hvítar reyndar en ein svört og önnur af kínverskum ættum auk þess sem aðalsöguhetjan, sem er hvít, á svarta dóttur. Hér er fjallað um allt sem við á að éta í stelpubókum: tísku, mat, ást, framhjáhald, skilnað, makamissi, karríer, óléttu og dauða. Hver kvennanna hefur sinn djöful að draga, oftast karlkyns auðvitað, og saman takast þær á við vandamálin og öðlast yfirsýn og þroska.

Hér er minna lagt upp úr húmornum en í bókum eins og Bridget Jones til dæmis og vandamálin sem konurnar takast á við eru auðþekkjanleg flestum konum sem komnar eru yfir táningsárin þannig að eflaust á bókin stóran þátt vinsælda sinna því að þakka að konur finna til samsvörunar við konurnar í sögunni og hugga sig við að vandamál þeirra séu ekki einstök. Sem er gott og blessað, en samfélagsrýnin er heldur grunnfærin og rétt skautað yfir alvarleg vandamál eins og þau sem fylgja því að ala upp svart barn í samfélagi hvítra. Höfundur fær þó stóran plús í kladdann fyrir að sleppa hinum hefðbundna hamingjusamlega endi.

Prjónaklúbburinn er skilgetið afkvæmi bókmenntastefnunnar sem kennd er við stelpur, chick lit eins og enskumælandi kalla hana. Bregður þó í nokkrum atriðum út af þeim lögmálum sem almennt ríkja í stelpubókmenntunum, enda höfundurinn kanadísk en ekki bandarísk.

Kannski ber að fagna því að opnað sé fyrir þá hugsun í slíkum bókmenntum að hamingjan kunni hugsanlega að felast í einhverju öðru en hring á fingri, en það dugar skammt til að gera bókina áhugaverða.

Þýðingin er dæmigerð fyrir alltof margar þýðingar úr ensku. Þýtt er frá orði til orðs í stað þess að hugsa setningarnar upp á nýtt á íslensku, svo úr verður þetta stórfurðulega tungumál sem hvergi sést nema í slíkum þýðingum.

Niðurstaða: Stelpubók sem bregður út af vananum, en ristir ekki sérlega djúpt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.