Nýr Landspítali: Slys aldarinnar? Guðjón Baldursson skrifar 29. desember 2011 06:00 Látið er að því liggja að bygging nýs Landspítala verði fjármögnuð fyrir sparifé landsmanna í lífeyrissjóðum sem verði fengið að láni og hafa margir af stærstu lífeyrissjóðunum undirritað viljayfirlýsingu þar að lútandi. Þá hefur verið talað um að „hagræðing muni borga byggingarkostnaðinn"! Þannig að við getum komið út í stórgróða, fengið spítalann gefins! Maður fyllist bara lotningu yfir svo mikilli reiknilist. Rökin fyrir nálægð spítalans við Háskóla Íslands eru óskiljanleg. Einkum með hliðsjón af fjarskiptatækni sem mun þróast æ hraðar á næstu árum og gera mönnum kleift að nota fjarfundabúnað og fjarskipti sem okkur órar varla fyrir. Háskólakennarar á Landspítalanum koma sjaldan í Háskóla Íslands. Þeir kenna á Landspítalanum sjálfum. Sjálfur var ég lektor við læknadeild HÍ í nokkur ár en ég man varla til þess að hafa átt erindi í Háskólann. Kennslan fór fram annars staðar. Af ummælum stjórnenda byggingaverkefnisins mætti ætla að háskólakennarar á Landspítalanum verði stöðugt hjólandi á milli Landspítalans og Háskólans. Þetta fræðaþorp með Landspítalann og Háskólann og aðrar fræðastofnanir er að mínu viti ekkert annað en sýndarveruleiki, stórt Lego-þorp sem stórir strákar í draumóraveröld eru að byggja. Rökin fyrir nálægð spítalans við Háskólann eru haldlaus. Byggðaþróun höfuðborgarsvæðisins á næstu áratugum verður í austur og norður af augljósum landfræðilegum ástæðum. Hugsanlega gæti miðja svæðisins verið í kringum Rauðavatn, Reynisvatn eða enn austar og norðar miðað við Umferðarspá höfuðborgarsvæðisins sem var unnin fyrir Vegagerðina árið 2004. Hringbrautarstaðsetningin er á þessari framtíðarmynd í jaðri byggðarinnar, fjærst nær allri annarri byggð og fjærst stofnæðum umferðar. Þar sem samgönguæðar eru hvað þrengstar eins og Miklabraut/Hringbraut nema til komi fjöldi mislægra gatnamóta og/eða stokkar undir umferðaræðar eins og Miklubrautina. Fjölgun íbúða fyrir stúdenta á háskólasvæðinu, Harpan, Háskólinn í Reykjavík og fjölgun gistirýma í miðborginni eykur umferðarþunga um Miklubraut/Hringbraut og Bústaðaveg og gerir aðgengið að Hringbrautarsvæðinu enn verra en ella. Frá því svæði þar sem stofnbrautakerfi höfuðborgarsvæðisins mun mætast og miðja byggðarinnar verða samkvæmt spám getur tími sjúkraflutninga að Vatnsmýrinni skipt verulegu máli. Hver mínúta í sjúkraflutningi getur ráðið úrslitum um horfur sjúklinga sem fluttir eru. Landspítalinn er og verður spítali allra landsmanna. Staðarval ætti að miðast við aðgengi og umferð fyrir allt landið en ekki einungis höfuðborgarsvæðið. Varðandi valkosti hafa verið nefndir nokkrir staðir á höfuðborgarsvæðinu: Elliðaárósar, Ártúnsholt, Vífilsstaðir, Keldur. Allir þessir staðir eru að mínu mati miklu betri valkostir en Hringbrautarstaðsetningin með hliðsjón af umferð og öryggi sjúklinga. Við ákvörðun staðsetningar ber ekki að horfa til ástandsins í dag, heldur byggðaþróunar næstu áratugina meðan spítalinn á að þjóna landsmönnum öllum. Staðhæft er af forvígismönnum spítalans að þetta staðarval sé allt of dýrt. Það er ugglaust rétt en það er örugglega dýrara að ráðast í framkvæmdir ef stoðir þeirra eru ekki nógu styrkar frá upphafi og tjaldað til einnar nætur. Hafa menn ekki dregið þann lærdóm af hruni íslenska fjármálakerfisins að maður eyðir ekki meiru en maður aflar, byggir ekki alltaf fyrir lánsfé? Væri ekki rétt að staldra við, líta til hægri og vinstri áður en gengið er yfir götuna svo forðast megi slys? Gangi viðreisn efnahagslífsins á Íslandi eftir mætti ætla að við værum komin á þokkalega siglingu efnahagslega eftir kannski 5 ár. Ég tel að við ættum að bíða að minnsta kosti þann tíma með byggingu nýs spítala. Á meðan getum við nýtt okkur það húsnæði sem við höfum. Það húsnæði er raunar komið á viðhaldsstig, sem er dýrt, en því húsnæði þyrfti jú hvort eð er að halda við. Nýr spítali ætti svo þegar efnahagslegar aðstæður leyfa að rísa austan Elliðaárósa þar sem aðgengi að honum er best, umferðaröryggi er tryggt og öryggi og velferð sjúklinga er höfð að leiðarljósi. Á Landspítalanum í Fossvogi (Borgarspítalanum) hefur öll aðstaða bráðaþjónustu verið stórbætt en þarf eflaust að bæta frekar. Ég tel að unnt sé að sinna allri bráðaþjónustu í Fossvoginum. Spítalinn er tiltölulega vel staðsettur, hann er byggður aðallega á hæðina, sem er kostur að mati margra arkitekta. Flutningur sjúklinga tekur miklu skemmri tíma en um langt og flókið undirgangakerfi eins og á teikningum spítalans við Hringbraut. Við spítalann er þyrlupallur. Með góðri stjórnun og vel skipulagðri verkaskiptingu ætti að vera hægt að reka hér sjúkrahúsþjónustu eins og hún gerðist best fyrir nokkrum árum. Til viðbótar má geta þess að fyrirtaks aðstaða er fyrir hendi á jaðarsjúkrahúsunum fjórum: Sólvangi í Hafnarfirði, Reykjanesbæ, Selfossi og á Akranesi. Öll þessi sjúkrahús hafa legurými og eru tækjum búin til þess að stunda svokallaðar valaðgerðir – í stuttu máli aðgerðir aðrar en bráðaaðgerðir svo sem minni bæklunaraðgerðir, kvensjúkdómaaðgerðir, háls-, nef- og eyrnaaðgerðir, lýtaaðgerðir og speglanir. Spítali sem er sveltur fjárhagslega, þar sem allt viðhald og öll verkefni sitja á hakanum, á ekki að ráðast í nýtt steinsteypuverkefni. Starfsemi spítalans er ekki undir því komin að um hana séu veglegir salir heldur byggist hún á starfsfólkinu sem þar vinnur, mannauðnum. Illu heilli fer mannauðurinn þverrandi, læknar og hjúkrunarfræðingar flytja úr landi og fáir koma heim úr framhaldsnámi. Hverjir munu starfa á hinu „nýja" sjúkrahúsi? Væri ekki nær að hlúa að starfsfólkinu sem heldur spítalanum gangandi, sem hefur fengið að axla þyngri og þyngri byrðar og skert kjör hin síðari ár? Áformuð bygging Landspítala við Hringbraut er stórslys 21. aldarinnar. Svo mikið stórslys að engin bráðaþjónusta mundi geta ráðið við afleiðingar þess. Við verðum með öllum ráðum að fyrirbyggja að þetta slys eigi sér stað. Framtíð íslenskrar heilbrigðisþjónustu er í húfi, ekki bara á næstu árum heldur á allri þessari öld. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðanir Mest lesið Halldór 5.10.2024 Jón Þór Stefánsson Halldór Spilling á Íslandi: Erum við að missa tökin? Ágústa Árnadóttir Skoðun Sleppum brúnni og förum betri leið framhjá Selfossi Elliði Vignisson Skoðun Háskóli Íslands er ekki að sinna skyldum sínum Silja Höllu Egilsdóttir Skoðun Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Stefán Ólafsson Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun Dauðarefsing Pírata Sigurjón Þórðarson Skoðun Að dansa í regninu Lóa Björk Ólafsdóttir Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Foreldrar eru sérfræðingar í sínum börnum Valdimar Víðisson Skoðun Skoðun Skoðun Uppeldi frá gamla einmenningar eins-skin-litar viðhorfum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Af ofurhetjum og störfum þeirra Kristín Björnsdóttir skrifar Skoðun Eignafólk græðir mikið á vaxtastefnu Seðlabankans Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur skrifar Skoðun Framtíðarkvíði er ekki gott veganesti Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Spilling á Íslandi: Erum við að missa tökin? Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Orkan á Vestfjörðum Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Smábátar eru þjóðhagslega hagkvæmari en togarar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Foreldrar eru sérfræðingar í sínum börnum Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Vísindin vakna til nýsköpunar! Einar Mäntylä skrifar Skoðun Risastórt lýðheilsumál sem Alþingi hunsar Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar Skoðun Þess vegna býð ég mig fram Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Sleppum brúnni og förum betri leið framhjá Selfossi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Einstakur atburður og viðbúnaður Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Framboð er eina leiðin Eiríkur St. Eiríksson skrifar Skoðun Háskóli Íslands er ekki að sinna skyldum sínum Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Verðmætasköpun og kennarar Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Nýjar lausnir gegn ofbeldi Drífa Snædal skrifar Skoðun Lögin um það sem er bannað Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Að dansa í regninu Lóa Björk Ólafsdóttir skrifar Skoðun Dauðarefsing Pírata Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Af hverju erum við að þessu? Kjartan Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða í boði orkugeirans og Landsvirkjunar Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Úrskurðargrautur lögmanna Ómar R. Valdimarsson skrifar Skoðun Er vitlaust gefið í stjórnmálum? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Hinn langi USArmur Ísraels Ingólfur Steinsson skrifar Skoðun Kveðja frá Heimssýn til landsfundar VG 2024 Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðaróperan á Alþingi í nær 70 ár Finnur Bjarnason,Þórunn Sigurðardóttir skrifar Skoðun Um Ölfusárbrú og veggjöld Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun
Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur skrifar
Telur rektor Háskóla Íslands úrskurði alþjóðadómstóla og ályktanir Sameinuðu þjóðanna vera pólitískt álitamál? Elí Hörpu- og Önundarbur Skoðun
Þriðjungur barna af erlendum uppruna tilheyrir ekki skólanum sínum Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun