Tónlist

Mugison með sex tilnefningar

María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna, greinir frá tilnefningunum. Beggja vegna hennar eru Stuðmennirnir fyrrverandi, Egill Ólafsson og Ragnhildur Gísladóttir.
María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna, greinir frá tilnefningunum. Beggja vegna hennar eru Stuðmennirnir fyrrverandi, Egill Ólafsson og Ragnhildur Gísladóttir. Fréttablaðið/Valli
Tilkynnt var um verðlaunaplötur Kraums í gær og einnig um tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna.

Sex íslenskar plötur hlutu Kraumsverðlaunin í gær, eða nýjustu plötur ADHD, Lay Low, Reykjavík!, Samaris, Sin Fang og Sóleyjar. Að mati dómnefndarinnar eiga þær það sameiginlegt að vera frumlegar, spennandi og skemmtilegar. Alls voru tuttugu plötur tilnefndar til verðlaunanna en formaður dómnefndar er blaðamaðurinn Árni Matthíasson.

Kraumur mun leggja metnað við að styðja alla þá titla sem eru valdir á Kraumslistann, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu. Sjóðurinn mun styðja við Kraumslistaplöturnar og jafnframt auka við möguleika listamannanna á bak við þær að koma verkum sínum á framfæri erlendis.

Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna voru einnig tilkynntar í gær. Mugison og GusGus fengu flestar tilnefningar, fyrir plöturnar Haglél og Arabian Horse, eða sex talsins. Á eftir þeim komu Lay Low og Björk með fimm tilnefningar hvor og Of Monsters and Men með þrjár.

Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í Silfurbergi, Hörpu, 29. febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.