Lífið

Fjallar um eftirköst eldgossins

mynd um eldgosið Herbert Sveinbjörnsson er með heimildarmynd í bígerð um eftirköst eldgossins.
mynd um eldgosið Herbert Sveinbjörnsson er með heimildarmynd í bígerð um eftirköst eldgossins.
Þrjár fjölskyldur sem hafa þurft að glíma við eftirköst eldgossins í Eyjafjallajökli eru í forgrunni nýrrar heimildarmyndar sem kvikmyndagerðarmaðurinn Herbert Sveinbjörnsson er með í vinnslu.

„Mig langar að fylgjast með og sjá hvernig fólki reiðir af þarna. Þegar maður sá þessar myndir af gosinu og öllu öskufallinu leit þetta út eins og það væri kominn heimsendir,“ segir Herbert. „Maður er alltaf að sjá myndir frá hamförum úti um allan heim en ég man ekki eftir að hafa séð heimildarmynd um eitthvað slíkt.“

Að sögn Herberts verður myndin á persónulegu nótunum. Fjölskyldunum verður fylgt eftir í eitt ár og engir sérfræðingar verða á meðal viðmælenda. „Ég er búinn að setja mig í samband við þrjár fjölskyldur. Þær eru búnar að samþykkja að taka þátt í þessu og þetta er fólk sem mér líst rosalega vel á. Þetta er fallegt og duglegt fólk.“

Herbert kynnti myndina nýverið á Nordisk Forum í Danmörku þar sem nýjar heimildarmyndir eru kynntar til sögunnar og tókst honum að selja hana í svokallaðri forsölu til norska og finnska ríkissjónvarpsins og til Eistlands.

Þess má geta að rokksveitin Skálmöld var í hljóðveri um síðustu helgi og tók þar upp lag sem hljómar í myndinni. Það er þeirra útgáfa af hluta Þúsaldarljóðsins sem Sveinbjörn I. Baldvinsson og Tryggvi M. Baldvinsson sömdu um síðustu aldamót.

Herbert er með fleiri járn í eldinum því hann er einnig að framleiða heimildarmynd um íslenska lífeyrissjóðskerfið í leikstjórn Gunnars Sigurðssonar. Saman sendu þeir frá sér Maybe I Should Have fyrir nokkrum árum sem fjallaði um bankahrunið. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.