Innlent

Fékk sár eftir egghvasst áhald

Tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglu í Vestmannaeyjum eftir helgina.

Í heimahúsi lenti maður í átökum við húsráðanda og fengu báðir áverka í andlit eftir átökin. Auk þess var hinn gestkomandi með sár á baki, líklega eftir egghvasst áhald. Maðurinn þurfti að leita aðstoðar læknis til að loka sárinu.

Hin árásin átti sér stað fyrir utan veitingastaðinn Lundann. Þar kastaði kona bjórglasi í andlit manns sem skarst í andlitinu. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×