Lífið

Líkja The Charlies við Britney Spears

Gengur vel Stúlknasveitin The Charlies gaf nýverið frá sér svokallað mixteip með sex lögum sem hefur meðal annars lagst vel í MTV-bloggarann Bradley Stern. 
mynd/grétakaren
Gengur vel Stúlknasveitin The Charlies gaf nýverið frá sér svokallað mixteip með sex lögum sem hefur meðal annars lagst vel í MTV-bloggarann Bradley Stern. mynd/grétakaren Mynd/Gréta Karen Grétarsdóttir
Tónlist íslensku stúlknasveitarinnar The Charlies hefur vakið eftirtekt víða eftir að þær Klara, Alma og Steinunn sendu frá sér mixteipið Start a Fire í byrjun nóvember.

Í vikunni útnefndi MTV bloggarinn Bradley Stern lag sveitarinnar, Let That Body Breathe, sem eitt af lögum vikunnar. Stern nefnir fimm lög og eru stúlkurnar í The Charlies þar í hópi með Britney Spears, Rihönnu, bresku sveitinni The Saturdays og sænska dúóinu Rebecca og Fiona.

Stern er hrifinn af öllum lögunum á mixteipinu svokallaða, en það inniheldur sex lög með stúlkunum, og tekur sérstaklega fram að honum þyki útgáfa sveitarinnar á laginu Yellow með Coldplay yndislegt.

Vefsíðan Sosogay.org hefur einnig tekið ástfóstri við nýja tóna The Charlies og hvetur lesendur sína eindregið til að hlusta á mixteipið. Vefsíðan líkir tónlist The Charlies við Britney Spears og segir að lag þeirra Monster (Eat Me!) sé svo gott að sjálf poppdrottningin hefði átt að taka sér það til fyrirmyndar þegar hún gerði plötuna sína Femme Fatale.

The Charlies eru því að fá góða viðtökur netverja en flest lögin þeirra eru unnin í samvinnu við íslenska upptökuteymið StopWaitGo sem einnig er að hasla sér völl vestanhafs. Íslenskir aðdáendur sveitarinnar ættu ekki að örvænta því í samtali við Fréttablaðið fyrr í haust sögðust stúlkurnar ætla að eyða jólunum á Íslandi. - áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.