Lífið

Amor skaut hestamanninn Fjölni

Fjölnir Þorgeirsson og Bryndís Ásmundsdóttir.
Fjölnir Þorgeirsson og Bryndís Ásmundsdóttir.
Fjölnir Þorgeirsson, hestamaðurinn góðkunni, lýsti því yfir við Séð og Heyrt árið 2008 að hann hygðist taka sér frí frá konum. Hann var þá nýhættur með sænskri kærustu sinni.

Örvar Amors hafa því verið vel brýndar þegar ástarguðinn hafði þær til flugs því þær hafa hæft Fjölni og Bryndísi Ásmundsdóttur beint í hjartastað. Bryndís hefur getið sér gott orð sem bæði leikkona og söngkona og fór meðal annars á kostum í hlutverki Janis Joplin í Íslensku óperunni.

Fjölnir á hins vegar enn vef sinn hestafrettir.is. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.