Lífið

Brynja nýr kynnir í Eurovision

Eurovision er stemning Brynja Þorgeirsdóttir verður kynnir í Eurovision í vetur. Fréttablaðið/Stefán
Eurovision er stemning Brynja Þorgeirsdóttir verður kynnir í Eurovision í vetur. Fréttablaðið/Stefán
„Ég hef alltaf horft á keppnina en ég er enginn Eurovision-fíkill eða heitur aðdáandi,“ segir nýr Eurovision-kynnir, Brynja Þorgeirsdóttir. Hún tekur við af Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur sem hefur gegnt þessu hlutverki síðastliðin ár.

Eins og Fréttablaðið greindi frá er Brynja sest á skólabekk í Háskóla Íslands og ætlar að vera í leyfi frá Kastljósinu eftir áramót. „Þetta starf passar hins vegar voðalega vel, það er bara fín aukavinna með skóla að vera Eurovision-kynnir,“ segir Brynja sem var einmitt á leiðinni á Þjóðarbókhlöðuna þegar Fréttablaðið náði tali af henni.

Þótt Brynja sé enginn Eurovision-fíkill þá á hún auðvitað sín eftirlætislög, „Það eru helst þessi "80-lög sem maður drakk í sig eins og svampur þegar maður var yngri.

Maður horfði á hverja einustu keppni og lærði lögin utan að, Módel, Eirík Hauksson, Björgvin Halldórsson og Guðrúnu Gunnarsdóttur.“ Af erlendum stjörnum nefnir Brynja helst Söndru Kim sem sigraði heiminn, aðeins fjórtán ára, með laginu J‘aime la vie. „Maður gat vel sett sig í hennar spor með hárburstann fyrir framan spegilinn.“

En fleiri ný andlit verða í Söngvakeppni Sjónvarpsins því Hljómskáladrengirnir Bragi Valdimar Skúlason og Guðmundur Kristinn Jónsson, Kiddi í Hjálmum, munu sjá um viðtöl við lagahöfundana í undankeppnunum þrem.

„Við fáum frjálsar hendur við að spyrja keppendur í Eurovision spjörunum úr, um lífið og tilveruna,“ segir Kiddi í samtali við Fréttablaðið. - fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.