Viðskipti innlent

Ógilding yfirtöku á svínabúum staðfest

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins um að ógilda yfirtöku Stjörnugríss á svínabúunum Brautarholti og Grísagarði.

Í júlí ógilti eftirlitið yfirtöku Stjörnugríss á tilteknum eignum félaganna, sem fóru með rekstur svínabúanna Brautarholts og Grísagarðs. Búin komust í eigu bankans eftir að fyrirtækin sem ráku þau urðu gjaldþrota.

Stjörnugrís og Arion banki kærðu ákvörðunina til áfrýjunarnefndar og gerðu margvíslegar athugasemdir við málið. Með úrskurði nefndarinnar er ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þó staðfest. - sv






Fleiri fréttir

Sjá meira


×