Innlent

Líkamsárás og áfengisstuldur

Tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir hættulega líkamsárás, vopnalagabrot og innbrot á Selfossi.

Ríkissaksóknari ákærði manninn fyrir að hafa slegið annan mann með hnúajárni í andlitið í apríl á síðasta ári. Þá ákærir lögreglustjórinn á Selfossi manninn fyrir fjölda annarra brota, meðal annars fyrir að brjótast inn á veitingastaðinn Kaffi Krús og stela vínflöskum. Við húsleit hjá manninum fundust kannabisplöntur og óskráð loftskammbyssa. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×