Innlent

Innbrotspar var dæmt í fangelsi

Kona á þrítugsaldri og karlmaður á fertugsaldri hafa verið dæmd fyrir fjölmörg þjófnaðarbrot. Hann skal sæta fangelsi í sex mánuði en hún var fékk sextíu daga skilorðsbundið fangelsi.

Fólkið var dæmt fyrir að brjótast inn í íbúðarhúsnæði og bíla og stela þar öllu sem hönd á festi. Þá var karlmaðurinn dæmdur fyrir nokkur þjófnaðarmál, þar sem hann hafði verið einn að verki. Parið játaði brotin. Maðurinn hafði áður hlotið dóma og rauf því skilorð með brotunum nú.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×