Blóðmjólkaður í Listaverkinu 16. september 2011 12:00 Annasamur október Baltasar Kormákur fær að hafa fyrir hlutunum í Listaverkinu, en hann getur eingöngu leikið í því í október.Fréttablaðið/Anton „
Þetta er nú ástæðan fyrir því að ég hef ekki leikið á sviði í átta ár, ég hef aldrei getað bundið mig á sama stað lengi,“ segir Baltasar Kormákur leikstjóri. Baltasar tilkynnti stjórnendum Þjóðleikhússins að hann gæti eingöngu leikið í leiksýningunni Listaverkinu út október vegna anna á öðrum vígstöðum. Leikstjórinn vildi ekki segja neitt frekar um þau mál að öðru leyti en að mörg spennandi verkefni væru í farvatninu og hann væri að skoða nokkur tilboð. „Og ég gæti þurft að hverfa til þeirra þannig að ég vildi bara að það kæmi skýrt fram að ég gæti leikið þetta út október. Og svo verður bara staðan tekin þá.“ Listaverkið skartar Baltasar, Ingvari E. Sigurðssyni og Hilmi Snæ Guðnasyni í aðalhlutverkum, en þremenningarnir léku þennan sama leik fyrir fjórtán árum við miklar vinsældir. Þjóðleikhúsið hefur ákveðið að bregðast við þessum tíðindum með því að „blóðmjólka“ krafta Baltasars og bregður á það ráð að bæta við sýningum. „Við verðum að leika tvær sýningar á laugardögum, þetta er náttúrlega algjört brjálæði,“ segir Baltasar, en þá hefur einnig verið ákveðið að taka niður hina svokölluðu svuntu sem gerir sviðið stærra. Með því bætast við fimmtíu sæti á besta stað á hverri sýningu og eru þeir miðar þegar komnir í sölu.- fgg
Lífið Mest lesið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Fleiri fréttir Krakkatían: Ber, forsetar og prinsessur Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir Sjá meira