Lífið

Ísland himnaríki húsbílaeigenda

Chuck Woodbury, einn helsti sérfræðingur í húsbílaferðalögum Bandaríkjamanna, hrósar Íslandi í hástert og segir landið vera paradís fyrir húsbílaeigendur.
Chuck Woodbury, einn helsti sérfræðingur í húsbílaferðalögum Bandaríkjamanna, hrósar Íslandi í hástert og segir landið vera paradís fyrir húsbílaeigendur.
„Gleymið því að fara alla leið til Nýja-Sjálands til að sjá stórfenglegt landslag. Ísland hefur allan pakkann.“ Þetta segir húsbílaeigandinn Chuck Woodbury.

Woodbury er raunar enginn venjulegur húsbílaeigandi því hann þykir fremsti sérfræðingur Bandaríkjanna í slíkum ferðalögum og rekur meðal annars vefsíðuna RVtravel.com. „Eina stundina lítur Ísland út eins og skosku hálendin. Handan við hornið er landslagið eins og við Oregon-ströndina og svo nokkrum kílómetrum seinna líður manni eins og á Mars,“ skrifar Woodbury í fréttabréfi til lesenda sinna.

Og ökuþórinn á ekki til orð yfir kyrrðinni á Íslandi, ekki einn einasti bíll hafi tekið fram úr honum fyrstu tvo dagana þrátt fyrir að hann hafi keyrt undir hámarkshraða. „Maður þarf ekki einu sinni að keyra út af til að taka myndir, það er enginn á ferli.“ Woodbury segir jafnframt að húsbílafloti og fellihýsaeign Íslendinga hafi aukist jafnt og þétt síðustu fimmtán árin. „Ég ætla að koma aftur, vika er allt of stuttur tími til að skoða Ísland.“

„Það hefur verið mikil aukning í komu erlendra húsbílaeigenda, fólk hefur verið að koma saman og svo var hérna hópur frá Danmörku í sumar,“ segir Soffía G. Ólafsdóttir, formaður Félags húsbílaeigenda. Í félaginu eru skráð 720 númer og stendur félagið fyrir allmörgum ferðum um Ísland yfir sumarið. Hún segist jafnframt hafa heyrt af því að margar bílaleigur séu farnar að bjóða upp á húsbíla til leigu og sú þjónusta hafi mælst vel fyrir. Soffía bætir því við að aðstaða á íslenskum tjaldsvæðum fyrir húsbílaeigendur sé misjöfn, það vanti helst svæði til að taka á móti stórum húsbílaflota.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.