Lífið

Talar út um skilnaðinn

Marc Anthony segir að skilnaður hans og Jennifer Lopez hafi verið sameiginleg ákvörðun. 
Nordicphotos/getty
Marc Anthony segir að skilnaður hans og Jennifer Lopez hafi verið sameiginleg ákvörðun. Nordicphotos/getty
Söngvarinn Marc Anthony talaði í fyrsta sinn um skilnað sinn og Jennifer Lopez fyrr á árinu. Anthony tók fyrir að framhjáhald væri orsök skilnaðarins og að þau væru mjög góðir vinir í dag. „Þetta var sameiginleg ákvörðun. Hún var erfið en við tókum hana saman. Engin jarðarför og ekkert sjokk. Svona hlutir gerast,“ sagði Anthony í samtali við fréttamann ABC sjónvarpsstöðvarinnar.

Ekki vildi hann tjá sig um dramatíkina kringum Smith-hjónin og aðkomu sína að því. Slúðurmiðlar hafa sakað Anthony um að eiga í sambandi við Jödu Pinkett Smith og að eiginmaður hennar Will Smith sé mjög ósáttur við fyrrum félaga sinn. Talsmenn beggja neita þessum sögusögnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.