Lífið

Fyrsta plata Bjögga Halldórs og félaga

Aðallagahöfundur rokksveitarinnar Elephant Poetry, Björgvin Halldórsson.fréttablaðið/valli
Aðallagahöfundur rokksveitarinnar Elephant Poetry, Björgvin Halldórsson.fréttablaðið/valli
Björgvin Halldórsson og rokksveit hans Elephant Poetry hafa gefið út sína fyrstu plötu, sem nefnist Trash Can Honey. Hljómsveitin er dönsk/íslensk og auk forsprakkans Björgvins, sem jafnan er kallaður Bjöggi, skipa hana þeir Anders Klindt, Dan Lings og Janus Bragi Jakobsson.

„Við kynntumst í meistaranámi árið 2002. Þetta hefur verið hobbý hjá okkur en við ákváðum að fara í þetta, taka upp og tékka á því hvað gerist," segir Björgvin, sem er ekkert skyldur hinum fræga alnafna sínum og tónlistargoðsögn. Hann er búsettur á Íslandi en er með annan fótinn í Danmörku. Spurður hvort honum hafi ekki verið ruglað saman við Bo Hall í gegnum árin segir hann: „Ég fæ mjög oft símtöl. Einhverjar fullar kerlingar á Súðavík eða eitthvað. Ég er orðinn frekar þreyttur á þessu."

Elephant Poetry hefur spilað af og til í Danmörku og voru fyrstu tónleikarnir á Vesterbro-hátíðinni í Kaupmannahöfn 2003. Sama ár gáfu Björgvin og félagar út prufuútgáfu með þremur lögum sem fékk fimm stjörnur af sex mögulegum í tímaritinu Soundvenue.

Nýja platan var að mestu tekin upp í Kaupmannahöfn í fyrra og var hún hljóðblönduð í Sundlauginni í Mosfellsbæ af Birgi Jóni Birgissyni. Platan verður eingöngu fáanleg á netinu til að byrja með, á síðunni Elephant-poetry.bandcamp.com og á Gogoyoko.com. Fyrsta smáskífulagið nefnist More than the Sun.- fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.