Lífið

Friðrik V hættur á Kexinu

Pétur Hafliði Marteinsson segir engin leiðindi vera á bak við brotthvarf Friðriks V af Kexinu en hann er hættur að kokka á veitingastað gistiheimilisins. Hér eru þeir Pétur og Kristinn Vilbergsson ásamt Friðriki V þegar Kexið opnaði.Fréttablaðið/Valli
Pétur Hafliði Marteinsson segir engin leiðindi vera á bak við brotthvarf Friðriks V af Kexinu en hann er hættur að kokka á veitingastað gistiheimilisins. Hér eru þeir Pétur og Kristinn Vilbergsson ásamt Friðriki V þegar Kexið opnaði.Fréttablaðið/Valli
„Það er engin dramatík í kringum þetta, við ætluðum alltaf að hafa þetta samstarf svona,“ segir Pétur Hafliði Marteinsson, einn eigenda veitinga- og gistihússins KEX.

Matreiðslumaðurinn Friðrik Valur Karlsson, eða Friðrik V, er hættur að elda í eldhúsi staðarins. Pétur segir matreiðslumanninn munu verða þeim innan handar við gerð matseðla. „Hann er algjör snillingur í að tala um mat og þessi ákvörðun var sameiginleg.“

Pétur segir að þeir ætli sér að ná enn betri tökum á svokölluðum kráarmat og að Friðrik verði þeim innan handar í þeirri nálgun. Matreiðslumaðurinn Tóti, sem áður var kokkur á Hótel Rangá og Einari Ben., hefur nú tekið við keflinu af Friðriki en Pétur tekur fram að ekki verði mikilla breytinga að vænta þrátt fyrir brotthvarf Friðriks. Fréttablaðið reyndi að ná í Friðrik í gær en án árangurs.

KEX Hostel hefur farið ákaflega vel af stað, gistiheimilið hefur verið þétt setið og þá hefur barinn slegið í gegn. „Þetta hefur gengið mjög vel og við hefðum bara ekki viljað hafa þetta betra,“ segir Pétur en athygli hefur vakið að stjörnurnar sem sinntu barþjónahlutverkinu fyrr á þessu ári eru flestar flognar á braut. „Rúnar Freyr var náttúrlega bara æskuvinur minn, við bjuggum í sömu blokkinni í Breiðholtinu og hann er núna byrjaður að æfa aftur fyrir eitthvert hlutverk. Björn Ingi Hilmarsson er síðan farinn aftur til Svíþjóðar þar sem hann býr. Við erum því bara búnir að ráða fólk í þeirra stað.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.