Erlent

Höfuðstöðvarnar á valdi uppreisnarliðs

Í höfuðstöðvum Gaddafís Uppreisnarmenn fagna í höfuðstöðvum Gaddafís og gera lítið úr helstu valdatáknum leiðtogans fallna.nordicphotos/AFP
Í höfuðstöðvum Gaddafís Uppreisnarmenn fagna í höfuðstöðvum Gaddafís og gera lítið úr helstu valdatáknum leiðtogans fallna.nordicphotos/AFP
Uppreisnarmenn í Líbíu náðu höfuðstöðvum Múammars Gaddafí í Trípolí á sitt vald í gær eftir harða skotbardaga við stuðningsmenn Gaddafís klukkustundum saman.

Höfuðstöðvarnar eru nokkur hús, herskálar og tjöld inni á rammgirtri lóð. Þar eru bæði skrifstofur Gaddafís og vistarverur hans og fjölskyldu hans. Hann sjálfur sást hvergi og var ekki vitað hvar hann væri niðurkominn.

Kirsan Iljumisjov, hinn rússneski forseti Alþjóðaskáksambandsins, sagðist þó hafa rætt við Gaddafí í síma í gær, en þeir munu vera góðir kunningjar.

„Við erum að leita að Gaddafí. Við verðum að finna hann núna,“ segir Sohaib Nefati, 29 ára gamall liðsmaður uppreisnarsveitanna, sem sat með riffil sinn upp við vegg innan höfuðstöðvanna.

Annar klifraði upp á fræga gyllta styttu af krepptum hnefa sem kremur líkan af bandarískri herþotu. Þar skaut hann upp í loftið við mikinn fögnuð félaga sinna.

Undanfarna mánuði hafa hersveitir NATO gert allmargar loftárásir á höfuðstöðvarnar, þannig að þær voru að stórum hluta í rústum þegar uppreisnarmennirnir réðust inn.

Uppreisnarmenn sögðust einnig vera með full yfirráð yfir byggingu ríkissjónvarpsins í Trípolí. Þeir sögðu flugvöllinn í borginni einnig vera á þeirra valdi.

Stjórnarherinn og aðrir stuðningsmenn Gaddafís höfðu þó enn suma hluta borgarinnar á sínu valdi og erlendir fréttamenn sögðust einnig sjá að þeir væru með nokkra staði innan höfuðstöðva Gaddafís á sínu valdi.

Bráðabirgðastjórn uppreisnarmanna í Bengasí, austan til í Líbíu, hefur sagst ætla að leggja áherslu á að ná sáttum meðal landsmanna. Þeir ætla sér að stjórna í skamman tíma meðan verið er að semja nýja stjórnarskrá og efna til kosninga.

gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×