Fjársjóður frá Hollywood 12. maí 2011 10:00 Gullnáma Johnny Depp og Penélope Cruz sem Jack Sparrow og Angelica ásamt Ian McShane í hlutverki Blackbeard, hins goðsagnakennda sjóræningja.
Fjársjóðsleit stórmyndaframleiðandans Jerry Bruckheimer skilaði sér þegar hann ákvað að gera mynd um sjóræningja. Fjórða myndin um Jack Sparrow var frumsýnd á Cannes í gær. Það var mikið um dýrðir þegar stjörnum prýddur leikarahópur Pirates of The Caribbean: On Stranger Tides rölti niður rauða dregilinn í Cannes. Fjórða myndin í sjóræningjamyndaflokki Jerry Bruckheimer er orðin að veruleika með eilitlum breytingum þó. Orlando Bloom, Keiru Knightley og leikstjóranum Gore Verbinski var sparkað frá borði en í þeirra stað eru komin Óskarsverðlaunaleikkonan Penélope Cruz, sem þykir taka sig vel út í sjóræningjabúningi, og Óskarsverðlaunaleikstjórinn Rob Marshall. Fjórða myndin fjallar reyndar um kunnuglegt stef, hún segir frá leit Jack Sparrow og félaga hans að Æskulindinni. Barbossa, í meðförum Geoffry Rush, er aldrei langt undan og nýr óvinur, Blackbeard, er rétt við sjóndeildarhringinn (þeirri persónu hefur reyndar brugðið fyrir í ansi mörgum sjóræningjamyndum og -þáttum). Flestir kvikmyndaspekúlantar voru sammála um Jerry Bruckheimer hlyti annaðhvort að vera klikkaður eða hefði einfaldlega ekki séð Cutthroat Island eftir Renny Harlin þegar framleiðandinn tilkynnti að hann hygðist gera sjóræningjamynd. Innblásturinn fékk hann frá skemmtigarði í Disney World. Sömu spekúlantar hafa sennilega skellt upp úr þegar Bruckheimer tilkynnti að Johnny Depp myndi leika aðalhlutverkið. En framleiðandinn fékk byr í öll segl því fyrsta myndin, Pirates of the Caribbean: The Curse of the Black Pearl, sigldi á fullri ferð í efstu hæðir miðasölunnar. Hún skilaði 514 milljónum dollara í gróða og öllum var ljóst að Bruckheimer ætlaði ekki að fella seglin og liggja fyrir akkeri. Að sjálfsögðu var um að ræða þríleik og þremur árum seinna birtist Dead Man‘s Chest. Áhorfendur flykktust í bíó, elskuðu Johnny Depp í hlutverki hins óskiljanlega Sparrow og dáðust að hinni hugrökku Elizabeth og undarlegu ástarsambandi hennar og Williams. Enda fór það svo að myndin skilaði 840 milljóna dollara gróða. Dómarnir voru reyndar ekkert sérstakir, gagnrýnendur voru sammála um að númer tvö bæri þess glögg merki að vera einhvers konar forleikur að síðasta kaflanum. Bruckheimer sparaði heldur ekkert krónurnar í þriðju myndina, At World‘s End, hún kostaði 300 milljónir í framleiðslu. En hún olli sárum vonbrigðum, krafturinn sem hafði einkennt fyrstu myndina var víðsfjarri, söguþráðurinn ruglingslegur og ótrúverðugur (eins gáfulega og það kann að hljóma um sjóræningjamynd). Gróðinn varð engu að síður umtalsverður, 660 milljónir dollara. Myndirnar þrjár hafa því skilað tveimur milljörðum dollara í gróða sem er stjarnfræðileg upphæð í íslenskum krónum talið: 227 milljarðar. En það er ámóta mikið og ríkið hefur eytt í að endurreisa fjármálafyrirtæki og tryggingarfélög síðustu tvö ár. freyrgigja@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Lífið Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lífið Vinur Patriks kom upp um hann Lífið Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Lífið Setja markið á 29. sætið Lífið Gurrý selur slotið Lífið Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Lífið Ekkert gefið eftir í elegansinum Tíska og hönnun Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Lífið Einar og Milla eiga von á barni Lífið Fleiri fréttir Vinur Patriks kom upp um hann Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Gurrý selur slotið Blöskrar tíminn sem þingmenn verja í tappatuð og gallabuxur Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Minnast Árna Grétars á maraþon-minningartónleikum Setja markið á 29. sætið Einar og Milla eiga von á barni Ísland í næstneðsta sæti veðbankanna Krakkatían: Toy Story, risaeðlur og spænska Lærði mikið af öllu hatrinu Lifðu af tvö flugslys sama daginn á Mosfellsheiði Þjóðin tjáir sig: Fáránlegt fyrirkomulag, stjörnutúlkar og skortur á menningarlæsi Myndaveisla: Spennustigið óbærilegt þegar VÆB unnu Söngvakeppnina VÆB keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Uppselt á Noruh Jones á nokkrum mínútum Bryan Adams seldi upp á hálftíma Laufey ein af konum ársins hjá Time Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Margt breyst í leiðsöguferðum á Breiðamerkurjökli eftir banaslysið Sjá meira