Vampíruleikari á nýjum slóðum 12. maí 2011 17:45 Hjartaknúsari Robert Pattinson leikur aðalhlutverkið í rómantísku kvikmyndinni Water for Elephants.
Flestar táningsstúlkur og mæður þeirra þekkja Robert Pattinson eða vampírupersónuna hans, Edward Cullen, úr Twilight-myndunum. En um helgina gefst fólki tækifæri til að sjá þennan mikla hjartaknúsara 21. aldarinnar í nýju hlutverki í ástarmyndinni Water for Elephants. Myndin segir frá Jacob, nema í dýralækningum, sem hættir námi og fer í sirkus eftir að foreldrar hans deyja. Þar kynnist hann hinni undurfögru Marlenu, eiginkonu sirkusstjórans, og verður um leið ástfanginn. Meðal annarra leikara í myndinni má nefna Christoph Waltz og Reese Witherspoon. Paul Bettany var spáð miklum frama í Hollywood þegar hann hreppti hlutverk munksins Silas í The Da Vinci Code sem Ingvar E. Sigurðsson reyndi einu sinni við. En hann hefur ekki alveg náð að fylgja því eftir og kvikmyndin Priest gefur ekki mikla ástæðu til bjartsýni. Myndin segir frá presti á miðöldum sem hyggst bjarga systur sinni frá vampíruhópi. Þriðja mynd helgarinnar er síðan enn ein b-myndin frá Nicholas Cage og heitir Drive Angry. Eins ótrúlega og það kann að hljóma segir myndin frá Milton , föður í hefndarhug, sem snýr aftur til jarðar eftir vist í helvíti.
Lífið Mest lesið Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Lífið Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Lífið Vinur Patriks kom upp um hann Lífið Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Lífið Setja markið á 29. sætið Lífið Gurrý selur slotið Lífið Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Lífið Ekkert gefið eftir í elegansinum Tíska og hönnun Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Lífið Einar og Milla eiga von á barni Lífið Fleiri fréttir Gellurnar fjölmenntu í afmæli Porra Vinur Patriks kom upp um hann Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Gurrý selur slotið Blöskrar tíminn sem þingmenn verja í tappatuð og gallabuxur Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Segir galið að vara við kjöti en ekki sælgæti Stjörnulífið: Skvísupartý, konudagurinn og Söngvakeppnin Minnast Árna Grétars á maraþon-minningartónleikum Setja markið á 29. sætið Einar og Milla eiga von á barni Ísland í næstneðsta sæti veðbankanna Krakkatían: Toy Story, risaeðlur og spænska Lærði mikið af öllu hatrinu Lifðu af tvö flugslys sama daginn á Mosfellsheiði Þjóðin tjáir sig: Fáránlegt fyrirkomulag, stjörnutúlkar og skortur á menningarlæsi Myndaveisla: Spennustigið óbærilegt þegar VÆB unnu Söngvakeppnina VÆB keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision „Trylltur þynnkuborgari“ slær í gegn á Íslandi og í Svíþjóð Fréttatía vikunnar: Tenerife, kúabú og KFC Alec Baldwin með áfallastreituröskun: „Ég er glaðari þegar ég sef“ Snúist ekkert um hvort börnin eigi íslenska eða erlenda foreldra „Jákvæð líkamsímynd bjargaði lífi mínu“ Franskur stíll í Sigvaldahúsi í Álfheimum Uppselt á Noruh Jones á nokkrum mínútum Bryan Adams seldi upp á hálftíma Laufey ein af konum ársins hjá Time Skotheldar hugmyndir fyrir konudaginn Stórfjölskyldan setur húsið á sölu Sjá meira