Lífið

Í skattasúpu

skulduðu skatt Ozzy og Sharon Osbourne fengu að vita af 190 milljóna króna skattaskuld í gegnum blaðamann. 
Nordicphotos/getty
skulduðu skatt Ozzy og Sharon Osbourne fengu að vita af 190 milljóna króna skattaskuld í gegnum blaðamann. Nordicphotos/getty
Rokkarahjónin Ozzy og Sharon Osbourne fengu heldur betur að finna fyrir því þegar þeim barst krafa frá skattayfirvöldum í Bandaríkjum sem hljóðaði upp á tæpar 190 milljónir króna. Hjónin fengu fyrst veður af skattaskuldinni gegnum blaðamann sem hafði nælt sér í pappírana.

„Ég gaf mér ekki tíma til að sinna peningamálunum og var alltaf að aflýsa fundum með endurskoðandanum okkar. Ég elska hreinlega sjálfa mig of mikið til að nenna sinna leiðinlegum peningamálum," viðurkenndi Sharon í viðtalsþættinum The Talk.

Þau virðast þó ekki vera á flæðiskeri stödd og hafa nú borgað skuldina háu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.