Erlent

Fjórir ofnar teknir úr notkun

Hvert bakslagið á fætur öðru hefur komið í baráttuna við að halda niðri geislamengun frá kjarnorkuverinu í Fukushima. Ákveðið hefur verið að leggja endanlega niður starfsemi í þeim fjórum ofnum versins sem til vandræða hafa verið.

Í gær mældist geislavirkni í sjó við ströndina meiri en nokkru sinni. Baneitrað plútón hefur einnig fundist í jarðvegi við verið, sem staðfestir grun um að geislavirkt vatn frá skemmdum eldsneytisstöfum hafi lekið úr verinu.

Geislamengun hefur mælst í matvælum og kranavatni, jafnvel í höfuðborginni Tókýó sem er í 220 kílómetra fjarlægð.

Erfiðlega hefur gengið að koma kælikerfi ofnanna í gang á ný, þótt rafmagn sé komið á. Kælikerfin sjálf hafa greinilega skemmst það mikið að rafmagnstengingin dugir ekki til að koma þeim af stað.

Í gær fréttist af því að Masataka Shmizu, forstjóri TEPCO, japanska orkuveitufyrirtækisins sem rekur kjarnorkuverið í Fukushima, hefði verið fluttur á sjúkrahús. Hann var mjög áberandi persóna í Japan fyrir jarðskjálftann en hefur lítið sem ekkert sést opinberlega síðasta hálfa mánuðinn.

Tsunehisa Katsumata, stjórnarformaður fyrirtækisins, viðurkenndi í fyrsta sinn í gær að ekki yrði framar hægt að starfrækja í það minnsta fjóra af sex kjarnaofnum versins.

„Eftir að hafa dælt sjó á ofnana tel ég að við getum ekki notað þá meir,“ sagði hann.

Fyrirtækið sagði að ákvarðanir um framtíð hinna ofnanna tveggja, sem ekki hafa verið til vandræða, yrðu teknar síðar og þá í samráði við íbúa í nágrenninu.

Japönsk stjórnvöld hafa þó haldið því fram í tíu daga að leggja þurfi niður alla starfsemi í verinu.

Öryggisráðstafanir í verinu voru miðaðar við að það þyldi jarðskjálfta upp á sjö stig, en skjálftinn mikli sem reið yfir föstudaginn 1. mars mældist 9 stig.

Í kjölfarið kom hamfaraflóð sem var öflugra og meira en nokkur hafði gert ráð fyrir þegar öryggisbúnaður versins var hannaður.

Opinberar tölur um staðfest mannfall segja að hamfarirnar hafi kostað á tólfta þúsund manns lífið, en að auki er meira en sextán þúsund manns saknað.

gudsteinn@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×