Lífið

Kvensamur Cooper

Kvensamur
Leikarinn Bradly Cooper hefur verið sakaður um að halda framhjá Renée Zellweger.
nordicphotos/getty
Kvensamur Leikarinn Bradly Cooper hefur verið sakaður um að halda framhjá Renée Zellweger. nordicphotos/getty
Tímaritið Star heldur því fram að leikarinn Bradley Cooper hafi haldið framhjá kærustu sinni, leikkonunni Renée Zellweger með engri annarri en Jessicu Biel, fyrrum kærustu Justins Timberlake.

Tímaritið segir að Cooper og Biel hafi orðið nokkuð náin við tökur á kvikmyndinni New Years Eve og að oft hafi sést til þeirra í innilegum faðmlögum. „Hann hélt fast um mitti hennar og starði djúpt í augun á henni og brosti," var haft eftir heimildarmanni.

Tímaritið vill einnig meina að Cooper hafi átt í stuttu ástarsambandi með Söndru Bullock þrátt fyrir samband hans og Zellweger.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×