Tíska og hönnun

Indíánamynstur & litagleði

Tískuhúsið Proenza Schouler þykir með þeim mest spennandi um þessar mundir. Hönnunartvíeykið Jack McCollough og Lazaro Hernandez kynntist árið 1998 er þeir voru við nám í Parsons-hönnunarskólanum.

McCollough og Hernandez sameinuðu krafta sína í útskriftarverkefni þeirra frá skólanum og slógu strax í gegn. Útskriftarlínan í heild sinni var keypt af hinni þekktu verslun Barneys New York og eftir það varð ekki aftur snúið.

Ný haustlína tískuhússins var frumsýnd á tískuvikunni í New York fyrir stuttu og hafa McCollough og Hernandez fengið mikið lof fyrir hana. Fatnaðurinn er litríkur og klæðilegur og fengu hönnuðirnir innblásturinn að honum er þeir voru á ferðalagi um Santa Fe í Nýju Mexíkó. Þar heilluðust þeir af mynstri er prýddi teppi indíána og hönnuðu í kjölfarið sína eigin útgáfu af því.

Hernandez og McCollough þakka fyrir sig að lokinni sýningu. Nafn tískuhússins er samsett úr eftirnöfnum mæðra þeirra beggja. Nordicphotos/getty
x






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.