Körfubolti

Cleveland tapaði 26. leiknum í röð og jafnaði met

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Byron Scott fyrrum leikmaður LA Lakers er þjálfari Cleveland.
Byron Scott fyrrum leikmaður LA Lakers er þjálfari Cleveland. AP

Taphrina Cleveland Cavaliers í NBA deildinni ætlar engan endi að taka og í gær tapaði liðið gegn Detroit á heimavelli 103-94. Cleveland hefur nú tapað 26 leikjum í röð og jafnaði met Tampa Bay Buccaneers sem tapaði 26 leikjum í röð 1976-1977 í NFL deildinni. Þessi lið deila nú meti sem enginn vill eiga yfir lengstu taphrinu í atvinnuíþrótt í Bandaríkjunum.

Chris Paul náði ekki að tryggja New Orleans sigur með þriggja stiga skoti á síðustu sekúnduinni gegn New Jersey. Sasha Vujacic skoraði 25 stig fyrir New Jersey í 103-101 sigri liðsins. David West skoraði 32 stig og tók 15 fráköst í liði New Orleans.

Orlando ætlar sér ekkert annað en að keppa um titilinn í vor og liðið þarf að treysta á að miðherjinn Dwight Howard verði í miklum ham það sem eftir er tímabilsins. Howard fór á kostum í gær í 99-95 sigri liðsins gegn Philadelphia þar sem hann skoraði 30 stig og tók 17 fráköst. Jason Richardson, sem kom frá Phoenix fyrr í vetur, tryggði Orlando sigurinn með tveimur vítaskotum 7 sekúndum fyrir leikslok.

San Antonio með besta vinningshlutfallið
DeJuan Blair skorar hér fyrir San Antonio.AP

San Antonio Spurs er með besta vinningshlutfallið í deildinni og liðið hefur nú unnið 44 leiki en tapað aðeins 8. San Antonio er á 9 leikja útileikjaferðalagi og hefur liðið aðeins tapað einum leik af alls fimm leikjum sem liðið er búið með. DeJuan Blair lék vel í liði Spurs en hann skoraði 28 stig og þar af 16 þeirra í fjórða og síðasta leikhluta. Ítalski landsliðsmaðurinn Andrea Bargnani var stigahæstur í liði Ratpors með 29 stig.

LA Clippers kom verulega á óvart með því að vinna New York á útivelli 116-108. Randy Foye skoraði 17 af alls 24 stigum sínum í fjórða leikhluta. Clippers hafði fyrir leikinn aðeins unnið þrjá leiki á útivelli.

Jose Barea skoraði 15 af alls 20 stigum sínum í fjórða leikhluta í 102-100 sigri Dallas gegn Sacramento. Þetta var tíundi sigur Dallas í röð á útivelli gegn Sacramento. Dirk Nowitzki náði sér ekk á strik vegna meiðsla í úlnlið en Jason Terry var stigahæstur í liði Dallas með 22 stig.

Ekki má gleyma ágætu liði Golden State sem vann Denver 116-114. Monta Ellis skoraði 37 stig fyrir Golden State, Dorell Wright bætti við 23 stigum og tók 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Carmelo Anthony skoraði 29 stig fyrir Denver.

Úrslit frá því í gær:

Cleveland - Detroit 94-103

Indiana - Charlotte 104-103

New Jersey - New Orleans 103-101

Philadelphia - Orlando 95-99

Toronto - San Antonio 100-111

Washington - Milwaukee 100-85

New York - LA Clippers 108-116

Utah - Chicago 86-91

Sacramento - Dallas 100-102

Golden State - Denver 116-114







NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×