Körfubolti

Cleveland setti vafasamt met í NBA-deildinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Svona var stemningin hjá leikmönnum Cleveland í nótt.
Svona var stemningin hjá leikmönnum Cleveland í nótt.

Hversu mikið saknar Cleveland LeBron James? Ansi mikið því liðið getur nákvæmlega ekki neitt án hans og setti í nótt vafasamt met er það tapaði 24 leik sínum í röð. Það hefur engu öðru liði í NBA-deildinni tekist áður.

Það sem meira er þá hefur Cleveland tapað 34 af síðustu 35 leikjum sínum.

"Þetta snýst ekki um hvort við munum vinna heldur hvenær. Ef við spilum af sömu hörku og í þessum leik þá kemur þetta," sagði Byron Scott, þjálfari Cleveland, sem er ekki af baki dottinn.

Úrslit næturinnar:

Charlotte-Dallas  92-101

Washington-Atlanta  92-99

Cleveland-Portland  105-111

New Orleans-LA Lakers  95-101

Houston-Memphis  95-93

Milwaukee-Detroit  78-89

Minnestota-Denver  100-113

Utah-Oklahoma  105-121

Golden State-Chicago  101-90

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×