Körfubolti

NBA í nótt: Anthony með stórleik í sigri Denver

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Carmelo Anthony.
Carmelo Anthony. Mynd/AP

Aðeins einn leikur fór fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt en í honum vann Denver góðan sigur á Indiana, 121-107.

Carmelo Anthony fór mikinn í leiknum og skoraði 36 stig fyrir Denver en þetta var fimmta tap Indiana í röð.

Anthony lék sérstaklega mikið til sín taka í þriðja leikhluta er hann skoraði 23 stig en alls setti hann niður sex þrista í leiknum - alla í þriðja leikhluta.

Denver hafði harma að hefna í leiknum því síðast þegar þessi lið mættust vann Indiana ótrúlegan sigur á heimavelli, 144-113.

Nene skoraði fimmtán stig fyrir Denver og tók þar að auki tíu fráköst. Hjá Indiana var Tyler Hansbrough stigahæstur með 27 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst en Paul George kom næstur með sautján stig.

Denver er í þriðja sæti í æsispennandi norðvesturriðili þar sem fjögur lið af fimm - Oklahoma City, Utah, Denver og Portland, hafa unnið minnst 25 sigra á leiktíðinni.

Indiana er einnig í þriðja sæti síns riðils í Austurdeildinni en með aðeins sextán sigurleiki. Bæði lið eiga ágætan möguleika á sæti í úrslitakeppninni en það virðist ætla að verða talsvert auðveldara að komast þangað upp úr Austurdeildinni.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×