Körfubolti

Sloan framlengir við Utah Jazz

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jerry Sloan.
Jerry Sloan.

Gamla brýnið Jerry Sloan er ekki af baki dottinn og hann er nú búinn að framlengja samning sinn við Utah Jazz um eitt ár.

Sloan er búinn að þjálfa Jazz síðustu 23 ár en hann byrjaði að vinna fyrir félagið árið 1983 sem njósnari. Hann tók við sem aðalþjálfari í desember 1988.

Sloan verður 69 ára í lok mars og státar af 1220-802 árangri með Jazz-liðið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×