Skoðun

Frú biskup

Davíð Þór Jónsson skrifar
Kristin kirkjuhefð er gegnsýrð af karlrembu. Því miður. Þótt þar hafi miðað í rétta átt á undanförnum áratugum, einkum meðal mótmælendakirkna, er þó enn langt í land með að jafnrétti sé náð. Enn neita margar helstu kirkjudeildir heims að veita konum prestvígslu. Enda er arfleifðin ekki beysin. Sjálfur Marteinn Lúther skrifaði að konur væru ekki færar um að ræða alvörumál öðruvísi en ruglingslega og afkáralega. Ágústínus kirkjufaðir og Tómas Akvínas leyfðu sér jafnvel að efast um fulla mennsku kvenna.

Samt tekur sköpunarsagan af allan vafa um að konan er sköpuð í Guðs mynd til jafns á við karlinn: „Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd. Hann skapaði hann í Guðs mynd. Hann skapaði þau karl og konu." (1Mós 1.27) Lagaákvæði feðraveldis frá bronsöld, sem varðveitt eru ásamt trúartextum í Gamla testamentinu, hafa verið notuð til að fela þessa grundvallarstaðreynd trúarinnar: Við erum öll í Guðs mynd jafnt.

Ljóst er að kynferði Krists og postulanna var aðeins líffræðileg, söguleg staðreynd og praktísk nauðsyn án nokkurs hjálpræðisgildis í sjálfu sér. Dauðarefsing lá við því að konur prédikuðu. Fæst okkar hefðu heyrt Jesú getið hefði hann fæðst stúlka. Kvenpostular hefðu verið sendir út í opinn dauðann. Kærleiksverk Krists beindust að hinum undirokuðu, ekki síst konum. Fyrsta manneskjan sem hann reisti frá dauðum var 12 ára stúlka (Mk 5.41-42), en líf þeirra var til fárra fiska metið í Palestínu fyrir 2000 árum. Jesús andmælti lögbundinni dauðarefsingu yfir bersyndugri konu (Jh 2.7). Sjálft fagnaðarerindið, „hann er upprisinn", var fyrst falið konum (Mt 28.6), en þær voru svo lágt skrifaðar að vitnisburður þeirra var ekki einu sinni tekinn gildur fyrir dómstólum. Af bréfum Páls postula er ljóst að konur gegndu ábyrgðar- og leiðtogahlutverki í frumkirkjunni. Hvað fór úrskeiðis?

Nýleg skoðanakönnun sýnir að innan við 18% íslenskra unglinga telur konur jafnhæfar körlum til að vera trúarleiðtogar. Á hinum Norðurlöndunum er þetta hlutfall hvergi undir 50% og í Danmörku er það 80%. Eitthvað mikið er að. Við þessu þarf að bregðast. Hluti skýringarinnar gæti verið í því fólginn að á íslensku hljómar orðasambandið „frú biskup" enn jafn annkanalega og orðasambandið „frú forseti" gerði allt til ársins 1980. Sem betur fer er auðvelt að breyta því - ef viljinn er fyrir hendi.

 

 

+++++++++++++++++

Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×