Skoðun

Val án veggjalds - jafnræði

Kristinn H. Gunnarsson skrifar
Fyrirhugaðar vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu munu bæta lífsskilyrði þar og styrkja sérstaklega byggðarlögin á Suðurnesjum og í Árnessýslu. Á tímum mikils atvinnuleysis  koma þessar framkvæmdir sér vel. Vegfarendur njóta ávinningsins  strax, en þó ekki að fullu þann tíma sem sérstakt veggjald verður innheimt.

Efnahagslegur ávinningur verður vegna minni slysakostnaðar og styttri ferðatíma. Það leiðir af sér hærra fasteignaverð, lægra vöruverð, aukið atvinnuúrval og atvinnuöryggi í byggðarlögunum utan Reykjavíkur svo það helsta sé nefnt. Áhrifin verða líka gagnkvæm og  munu styrkja höfuðborgarsvæðið. Ítarlegar rannsóknir sem Vífill Karlsson, hagfræðingur hefur gert á áhrifum Hvalfjarðarganga staðfesta þetta. Þrátt fyrir að vegfarendur um Hvalfjarðargöng greiði veggjald  þá hafa þeir og íbúar á áhrifasvæði vegabótanna  nú þegar haft mikill fjárhagslegan ávinning af göngunum.

Á sínum tíma voru valkostirnir tveir, annars vegar að gera Hvalfjarðargöngin og greiða veggjald eða bíða í óvissu um hvort eða hvenær framfarirnar yrðu. Allir,sem í hlut eiga, hafa haft ávinning af því að veggjaldaleiðin var farin, íbúar á höfuðborgarsvæðinu, á Vesturlandi, Vestfjörðum , Norðurlandi og víðar. Sama mun verða upp á teningnum með framkvæmdirnar austur fyrir Fjall og til Suðurnesja, ef á annað borð bættir vegir skila framförum.

Séu vegirnir nú þegar svo góðir að tvöföldun þeirra og aðrar endurbætur skila engu þá á ekki að ráðast í framkvæmdirnar, hvorki með gjaldi né án þess og hvorki nú né síðar. Þá er staðan einfaldlega þannig að endimörkum framfara er náð og frekari framkvæmdir einungis  sóun á opinberu fé. Hins vegar er enginn þeirrar skoðunar að svo sé raunin og þess vegna er kallað eftir vegabótum. Vegfarendur til Suðurnesja og austur í Árnessýslu eru jafnsettir vegfarendum norður á bóginn frá Reykjavík þótt veggjald verði tekið. Þeir geta í öllum tilvikum með nýjum Suðurstrandarvegi komist leiðar sinnar án veggjalds og án þess að leiðin lengist að ráði umfram það sem Skagamenn  og Borgfirðingar búa við.  Þeir eiga alltaf val án veggjalds, og þar með er jafnræðis gætt milli umferðar í allar áttir frá Reykjavík.

 




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×