Fótbolti

Teiknimyndaþættir um Mourinho

Vinsældir Jose Mourinho, þjálfara Real Madrid, og það miklar að nú á að ráðast í gerð teiknimyndaþátta þar sem portúgalski þjálfarinn verður í aðalhlutverki.

Þáttaröðin mun heita Mourinho og hinir sérstöku. Þættirnir eiga að hjálpa krökkum að verða betri fótboltamenn og persónur.

Fyrirtækið sem framleiðir þættina leitar nú að fjárfestum til þess að taka þátt í ævintýrinu en miklar vonir eru bundnar við verkefnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×