Fótbolti

Mourinho: Eðlilegt fyrir Ronaldo að skora þrennu

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, var hæstánægður með strákana sína sem niðurlægðu Sevilla í gær, 6-2. Það breytti engu þó Madrid væri manni færri hálfan leikinn. Yfirburðirnir voru algjörir.

"Ég fór fram á sigur og að við tækjum toppsætið á nýjan leik. Eina sem skipti máli í þessum leik voru stigin þrjú," sagði Mourinho en Madrid er með þriggja stiga forskot á Barcelona eftir leikinn.

Ronaldo var arfaslakur gegn Barcelona en fann fjölina sína í gær og skoraði þrennu.

"Þetta er eðlileg frammistaða hjá Cristiano fyrir mig. Það er eðlilegt fyrir hann að spila svona, að skora mörk og hjálpa liðinu," sagði Mourinho og hann hrósaði líka Angel di Maria.

"Di Maria er fyrirmynd fyrir alla. Hann var í jarðarför í Argentínu fyrir nokkrum dögum og mun fara aftur heim núna. Hann leggur mikið á sig og er til fyrirmyndar."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×