Fótbolti

Loksins sigur hjá Hoffenheim | Gylfi ekki með

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Bongarts
Hoffenheim vann í dag sinn fyrsta sigur síðan í lok október er liðið vann Nürnberg á útivelli, 2-0. Vedad Ibisevic skoraði bæði mörk liðsins.

Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Hoffenheim en hann fékk högg í leik liðsins gegn Leverkusen í síðustu viku og gat ekki æft með félögum sínum á ný fyrr en í gær.

Ibisevic kom Hoffenheim yfir á 40. mínútu og þremur mínútum síðar fékk Timothy Chandler að líta beint rautt spjald.

Hoffenheim lék því manni fleiri í síðari hálfleik, Ibisevic skoraði aftur á 56. mínútu og tryggði sínum mönnum góðan sigur.

Hoffenheim er nú í áttunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 21 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×