Fótbolti

Van Gaal vill starfslokasamning hjá Bayern

Hollenski þjálfarinn Louis van Gaal reynir nú að ganga frá starfslokum við FC Bayern svo hann geti byrjað að vinna fyrir Ajax. Hann er á launum hjá þýska félaginu fram á næsta sumar.

Van Gaal vill hefja störf hjá Ajax um áramótin en hann hefur verið ráðinn stjórnarformaður hjá félaginu.. Hann er því til í að gefa eftir laun hjá Bayern.

Van Gaal var rekinn frá Bayern í apríl á þessu ári og þýska félagið hefur heldur betur verið á flugi síðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×