Lífið

Láttu drauma þína rætast

Eygló Linda Hallgrímsdóttir næringarþerapisti skrifar
Eygló Linda Hallgrímsdóttir er nýr pistlahöfundur á Lífinu.
Eygló Linda Hallgrímsdóttir er nýr pistlahöfundur á Lífinu.
Við erum öll einstök. Við erum frábær eintök búin til af foreldrum okkar. Suma hæfileika fáum við í vöggugjöf en aðra getum við þjálfað upp með mjög góðum árangri. Mikilvægt er að þora að æfa

sig og ekki leyfa neikvæðum hugsunum að koma í veg fyrir að draumarnir rætist.

Skrifaðu niður kosti þína

Ef þig virkilega langar, getur þú miklu meira en þú gerir þér grein fyrir og þar af leiðandi vakið upp fleiri hæfileika sem þú býrð yfir. Gott er að þú veltir því fyrir þér og skrifir niður á blað hverju þú ert góð/ur í og hvað það er sem gleður þig raunverulega. Það er mikilvægt að skrifa allt niður. Síðan getur þú farið yfir stöðuna, hvort eitthvað af því sem þú punktaðir niður getur þú lært og æft þig í og hvar meðfæddir hæfileikar þínir liggja.

Sterkur hugur og sjálfsagi

Ef þú skoðar þetta svona þá sérðu í flestum tilvikum að hæfileikar eru áunnir með þínum eigin vilja og trú á eigin getu með mikilli ástundun og vinnu. Það er ekki sjálfgefið að einhver sem hefur meðfædda hæfileika verði meistari. Því að hugurinn þarf líka að vera sterkur og góður og sjálfsagi er nauðsynlegur til að komast á toppinn.

Hafðu trú

Sá aðili sem hefur trú á sér, veit hvert hann stefnir og hefur vilja til að æfa sig, kemst oft miklu lengra þó svo að hann sé í raun hæfileikaminni en sá sem fæddist með hæfileikana. Þannig að þegar þú einblínir á lausnir og leyfir þér að gera það sem þig dreymir um að gera þá er leiðin í átt að markmiðinu greiðari.

Ef þig vantar eitthvað af hæfileikum í viðbót til að láta drauma þína rætast þá tekur þú meðvitað eitt og eitt fyrir í einu og bætir við þekkingu þína og hæfileika til að komast alla leið. 

Auðvitað er meiriháttar ef hæfileikar, draumar og einlægur vilji þinn fylgist að en þá ert þú óstöðvandi í því sem þú tekur þér fyrir hendur. Við köllum það hugljómun.

Mundu að við erum öll með frábæra hæfileika en vitum stundum ekki af þeim. Til eru dæmi um fólk sem verður veikt eða lendir í slysi og finnur oft nýjar hliðar á sér, eins og að mála heilu málverkin blindandi eða jafnvel með tánum.

Lifandi hús - Heilsustofan.is næringarþerapía & fæðuóþolspróf á vegum Eyglóar.


Tengdar fréttir

Fæða sem hægir á öldrun

Hollur matur og heilsusamlegt líferni hjálpar þér að örva hugarafl þitt og þú nærð markvisst utan um það sem þú vilt framkvæma...

Svona færðu sléttan kvið

Á meðan slæm kolvetni fita okkur um miðjuna eru aðrar fæðutegundir sem hjálpa okkur í baráttunni við aukakílóin. Hér nefni ég nokkur dæmi um góða fæðu...






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.