Körfubolti

KR vann í Njarðvík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Margrét Kara Sturludóttir skoraði 21 stig í kvöld.
Margrét Kara Sturludóttir skoraði 21 stig í kvöld.
KR er enn með fullt hús stiga í Iceland Express-deild kvenna en annarri umferð lauk í kvöld. Valur og Keflavík unnu einnig sína leiki.

KR-ingar unnu tíu stiga sigur í Njarðvík í kvöld og munaði mestu um góða frammistöðu þeirra í öðrum leikhluta sem KR vann, 25-14. Meira jafnræði var með liðunum í seinni hálfleik en KR náði að halda sjó til loka og innbyrða góðan útisigur.

Valur vann nýliða Fjölnis, 88-78, en Grafarvogsliðið kom á óvart í fyrstu umferðinni með því að vinna Íslands- og bikarmeistara Keflavíkur.

Keflvíkingar unnu þó sannfærandi 40 stiga sigur á Hamar á heimavelli í kvöld, 105-65, þar sem Pálína Gunnlaugsdóttir fór á kostum og skoraði 32 stig.

Fjölnir-Valur 78-88 (23-26, 20-26, 17-27, 18-9)

Fjölnir: Brittney Jones 33/7 fráköst/10 stoðsendingar, Katina Mandylaris 26/21 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 10/6 fráköst, Birna Eiríksdóttir 5, Eva María Emilsdóttir 2, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 2/6 fráköst..

Valur: María Ben Erlingsdóttir 21/7 fráköst, Kristrún Sigurjónsdóttir 20/7 fráköst/5 stoðsendingar, Melissa Leichlitner 18/4 fráköst/8 stoðsendingar, Hallveig Jónsdóttir  11/4 fráköst, Þórunn Bjarnadóttir 6/6 fráköst, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 4, Guðbjörg Sverrisdóttir 3/4 fráköst, Berglind Karen Ingvarsdóttir 3, Signý Hermannsdóttir 2/8 fráköst/5 varin skot.

Njarðvík-KR 87-97 (28-25, 14-25, 22-26, 23-21)

Njarðvík: Lele Hardy 27/12 fráköst/5 stoðsendingar/5 stolnir, Petrúnella Skúladóttir 22, Shanae Baker 13/11 fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 12/6 fráköst/3 varin skot, Andrea Björt Ólafsdóttir 6, Eyrún Líf Sigurðardóttir 3, Ólöf Helga Pálsdóttir 2, Aníta Carter Kristmundsdóttir 2.

KR: Reyana Colson 29/11 fráköst/7 stoðsendingar/7 stolnir, Bryndís Guðmundsdóttir 21/6 fráköst, Margrét Kara Sturludóttir 21/7 fráköst/5 stolnir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 20/5 fráköst, Hafrún Hálfdánardóttir 6/5 fráköst.

Keflavík-Hamar 105-65 (25-13, 32-22, 22-19, 26-11)

Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 32/5 stolnir, Jaleesa Butler 16/11 fráköst/6 stoðsendingar/6 stolnir/5 varin skot, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 16/5 fráköst/5 stoðsendingar, Sara Rún  Hinriksdóttir 16, Lovísa Falsdóttir 10, Helga Hallgrímsdóttir 4, Soffía Rún Skúladóttir 3, Telma Lind Ásgeirsdóttir 2, Sigrún Albertsdóttir 2, Aníta Eva Viðarsdóttir 2, Hrund Jóhannsdóttir 2.

Hamar: Samantha Murphy 26/4 fráköst/7 stolnir, Hannah Tuomi 17/8 fráköst, Álfhildur Þorsteinsdóttir 16/11 fráköst, Jenný Harðardóttir 6.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×