Veiði

Fréttir úr Tungufljóti

Karl Lúðvíksson skrifar
Mynd af www.svfr.is
Það virðist vera nokkuð af sjóbirtingi í Tungufljóti eftir sunnan áhlaupin undanfarið. Hollið 26-28/9 fékk 19 fiska við mjög erfiðar aðstæður.

Árni Már Björnsson var með tvær stangir í hollinu:

"Vorum í veiði í Tungufjóti 26-28 sept og náðum 19 fiskum þar af 3 löxum þrátt fyrir að áin hafi verið óveiðanleg einn seinnipart sökum ofvaxtar vegna rigninga. Megnið af aflanum kom aðeins á tvær stangir þar sem tveir danir voru við heimildarmyndartöku í ánni og voru því þær tvær stangir takmarkað við veiðar. Mest var um fisk á bilinu 5-7 pund en tveir bolta sjóbirtingar komu á land 15 og 17 punda. "

Birt með góðfúslegu leyfi SVFR






×