Veiði

70-90 laxa dagar í Eystri Rangá

Karl Lúðvíksson skrifar
Björn Hlynur með flottann lax úr Eystri Rangá en áin fer líklega yfir 3.000 laxa í dag

Eystri Rangá er næst aflahæsta á landsins og fer yfir 3.000 laxa múrinn í dag en hún stóð í 2.985 löxum í gær þegar tölur voru teknar saman.

Það hafa verið að veiðast 70-90 laxar á dag í ánni sem er feykna góð veiði og að sama skapi var maðkaopnunin mjög góð en hófstilltari en í Ytri Rangá en kvóti er á fjölda laxa sem má hirða á hverri vakt og hefur það fyrirkomulag mælst vel fyrir.

Haustið getur oftar en ekki verið frábær tími í ánni og það hefur sýnt sig í gegnum árin að þegar vel viðrar á veiðimenn getur september auðveldlega skilað 1.000 löxum í veiðitölurnar og október 500-600 löxum, jafnvel meira. Það er þess vegna ekkert ólíklegt að Eystri Rangá fari langleiðina í 5.000 laxa en það er víst nóg af laxi í ánni til að koma henni í þá tölu.






×