Fótbolti

Forráðamenn Dortmund búnir að viðurkenna ósigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Einn forráðamanna þýska úrvalsdeildarfélagsins Borussia Dortmund segir það frágengið að Bayern München muni vinna deildina þetta tímabilið. Dortmund er núverandi Þýskalandsmeistari.

Dortmund er nú í sjötta sæti deildarinnar og sex stigum á eftir Bayern sem hefur verið nánast óstöðvandi í upphafi leiktíðarinnar. Liðið fékk síðast á sig mark í fyrstu umferð tímabilsins í óvæntu tapi fyrir Borussia Mönchengladbach.

„Bayern München er með ótrúlega sterkan leikmannahóp. Þeir munu vinna titilinn þetta tímabilið. Það er hinn heilagi sannleikur,“ sagði Hans-Joachim Watzke, einn stjórnarmanna Dortmund, við þýska fjölmiðla.

„Við erum ekki að einbeita okkur að því að verja titilinn. Við erum enn á fullu í Meistaradeild Evrópu. Nú eru tveir leikir fram undan gegn Olympiakos og við verðum að ná í stig í þeim leikjum. Okkar markmið er að komast áfram í 16-liða úrslitin.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×