Sandnes Ulf nálgast úrvalsdeildina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. október 2011 15:38 Steinþór Freyr í leik með Stjörnunni í fyrra. Mynd/Vilhelm
Sandnes Ulf vann í dag 3-0 sigur á Hödd og er fyrir vikið með fimm stiga forystu á toppi norsku B-deildarinnar. Steinþór Freyr Þorsteinsson og Ingimundur Níels Óskarsson eru báðir á mála hjá Sandnes Ulf. Aðeins tvö stig skilja að liðin í öðru til fimmta sæti en efstu tvö lið deildarinnar komast beint upp í úrvalsdeildina. Steinþór Freyr var í byrjunarliði Sandnes Ulf en var tekinn af velli á 75. mínútu. Ingimundur Níels kom svo inn á sem varamaður og spilaði síðustu fimm mínúturnar. Sandnes Ulf stendur því vel að vígi í toppbaráttunni en enn eru þrjár umferðir óleiknar auk þess sem nokkur lið við toppinn eiga leik til góða. Guðmann Þórisson spilaði allan leikinn fyrir Nybergsund sem tapaði fyrir Ranheim á útivelli í sömu deild, 4-1. Þrjú neðstu liðin falla um deild og er Nybergsund nú í þriðja neðsta sætinu, níu stigum á eftir næsta liði þegar þrjár umferðir eru eftir. Það er því nánast útilokað að liðið bjargi sér frá falli úr þessu. Það var einnig mikilvægur leikur í toppbaráttu sænsku B-deildarinnar í dag. Ängelholm vann þá 3-0 sigur á Öster í Íslendingaslag og er nú jafnt Sundsvall að stigum á toppi deildarinnar. Bæði lið eru með 52 stig en Sundsvall á þó leik til góða. Heiðar Geir Júlíusson kom inn á sem varamaður í liði Ängelholm og spilaði síðustu tíu mínúturnar í leiknum. Ängelholm hafði tapað tveimur leikjum í röð fyrir þennan og sigurinn því mikilvægur. Davíð Þór Viðarsson spilaði að venju allan leikinn í liði Öster sem er í fimmta sæti deildarinnar, átta stigum á eftir toppliðunum tveimur.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Leikhlé Dags vakti athygli: „Til fjandans með þá alla“ Handbolti Líta það alvarlegum augum þegar þjálfari niðurlægir iðkendur Sport Glugginn lokast: Ensku meistararnir fá fjórða manninn Enski boltinn Forsetinn beinskeyttur aðspurður um framtíð Alfreðs í starfi Handbolti Dagur heldur áfram: „Fannst ég endurfæddur“ Handbolti Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Íslenski boltinn Kossinn „skemmdi einn besta dag lífs míns“ Fótbolti Snorri um áhyggjuefni: „Hægt að færa rök fyrir því að án hans værum við í veseni“ Handbolti Ósáttur Haaland eldri skýtur á Arsenal Enski boltinn Stálust til að vera tólf á vellinum: „Algjört hneyksli“ Fótbolti Fleiri fréttir Markmannskapall FCK: Rúnar Alex þriðji markmaður? Neituðu tilboði Burton í Arnór Ingva Chelsea kom til baka í síðari hálfleik Sveindís Jane heldur í við toppliðin Martínez með slitið krossband Rashford: „Vil bara spila fótbolta“ Kossinn „skemmdi einn besta dag lífs míns“ Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Stálust til að vera tólf á vellinum: „Algjört hneyksli“ Glugginn lokast: Ensku meistararnir fá fjórða manninn Ósáttur Haaland eldri skýtur á Arsenal Hæddist að Haaland og nú vita allir hver hann er Skagamenn kaupa Hauk frá Lille Rashford genginn í raðir Villa Rómverjar stöðvuðu sigurgöngu toppliðsins Stjarnan/Álftanes fagnaði sigri en Víkingur heldur titlinum Róbert Orri semur við Víkinga Orri skoraði annan leikinn í röð Skytturnar gengu frá Englandsmeisturunum Mateta skaut niður Man. United á Old Trafford Albert skoraði á móti gömlu félögunum Hákon fékk fyrst á sig sjálfsmark og svo var hann klobbaður Hákon byrjar sinn fyrsta leik í ensku deildinni Lewandowski tryggði Barcelona sigur Manchester United búið að kaupa Danann frá Lecce „Vertu auðmjúkur“ leikurinn, taka tvö Salah orðinn sá sjötti markahæsti í sögunni: „Erum á réttri leið“ United sækir annað ungstirni frá Arsenal Rashford við það að ganga í raðir Aston Villa Hákon lagði upp og Lille stökk upp um tvö sæti Sjá meira